DJI_0099
20.000krPrice
Klettadrangurinn Þuríður, á fjallinu Óshyrnu við Bolungarvík
Tignarleg Óshyrnan rís 656 metra yfir sjávarmál með snarbrattar hlíðar prýddar formfögrum klettadröngum. Hún stendur við mynni Bolungarvíkur og er jafnframt ysti hluti Óshlíðar og eitt þekktasta kennileiti sjófarenda í gegnum aldirnar. Í Óshyrnu er strandklettur sem nefndur er Þuríður, kenndur við landnámskonuna Þuríði Sundafylli, sem kom til Íslands árið 940 og bjó á Vatnsnesi í Syðridal, inn af Bolungarvík. Hún og förunautar hennar námu Bolungarvík alla og Skálavík.